Kaffi Hipsumhaps

Kæru hlustendur,

Frá 1. desember til jóla verður Hipsumhaps með pop-up í Naustunum, Tryggvagötu 22, í hjarta Reykjavíkur. Þar verður hægt að nálgast varning í nafni tónlistarinnar sem verður eingöngu fáanlegur á staðnum:

  • Kaffibollar með 50 textabrotum í samstarfi við Ingu Elínu
  • Nýmalað kaffi frá Reykjavík Roasters
  • Sérhönnuð textaverk eftir pöntun
  • Heitpressaður vínyll af Algrími hjartans ásamt eldri plötum
  • Bleksvartar derhúfur frá New Era
  • Kósý kerti og Hipsumhaps spil

Úr þessu er líka hægt að setja saman gjafakassa, tilvalið í jólapakkann.

Opið mánudaga til laugardaga kl. 12 til 18.

Frá 21. desember er opið til kl. 20 og á Þorláksmessu til kl. 22. Lokað á sunnudögum.

Pantanir á textaverkum fara fram á info@hipsumhaps.is til 20. desember.

Einnig er hægt að bóka einkatónleika í rýminu fyrir 15 til 40 manns, tilvalið fyrir skemmtilega hópa sem vilja hafa það næs fyrir jólin. Kvöldið hefst kl. 20 eða eftir samkomulagi.

Laus kvöld:

  • 4. og 5. desember
  • 11. og 12. desember
  • 17., 18. og 19. desember

Bókanir fara fram á bookings@hipsumhaps.is.

Hlakka til að sjá ykkur.

HH